Fara á upphaf innihalds síðunnar.
Þú ert á

Um Lingu@net Europa

Hvað er Lingu@net Europa?

Lingu@net Europa er rafrænt gagnasafn á mörgum tungumálum fyrir nám í erlendum tungumálum.

Vefurinn veitir upplýsingar um, og krækjur á gæðaprófað efni á netinu alls staðar að úr heiminum varðandi tungumálanám og -kennslu.

Lingu@net Europa byggir á þeirri hugmyndafræði að sért þú að læra eða kenna tungumál gætir þú haft áhuga á upplýsingum á hvaða tungumáli sem þú skilur - ekki aðeins upplýsingum sem þú finnur með því að leita á móðurmálinu.

Lingu@net Europa veitir aðgengi á mörgum tungumálum að rúmlega 3,500 skrásettum vefsíðum, margar þeirra sérstaklega ætlaðar nemendum. Vefurinn veitir einnig fullorðnum nemendum upplýsingar um hvernig eigi að læra tungumál, hvernig þeir geta metið færni sína og hvernig þeir komast í netsamband við aðra nemendur. Þessi hluti vefsins hefur verið þróaður af sérfræðingum í tungumálanámi og -kennslu um alla Evrópu.

Þú getur farið inn á vefinn á: baskamáli, búlgörsku, dönsku, eistnesku, ensku, finnsku, frönsku, galisísku, grísku, hollensku, íslensku, ítölsku, katalónsku, litháisku, maltnesku, portúgölsku, pólsku, spænsku, sænsku, og þýsku.

Lingu@net Europa er þróað af 24 stofnunum frá 20 Evrópulöndum.

EUROPA - Education and Training - Socrates logotype

Til þessa hefur markhópur Lingu@net Europa einkum verið tungumálakennarar. Verkefnið fær nú fjárhagsstuðning frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Sókrates-áætluninni (Lingua 2 action), til að vinna að eftirtöldu:

  • fjölga tungumálum,
  • auka við gagnasafnið og
  • veita fullorðnum tungumálanemendum aðstoð.

Lingu@net Europa er ókeypis. Þér er velkomið að nota það, mæla með efni sem yrði bætt við safnið og allar athugasemdir eru velkomnar.

[ efst ]