Ábendingar fyrir nemendur
Ég er hrædd(ur) við að tala.
- Leyfðu þér að gera villur – það er nauðsynlegur hluti náms! Slakaðu á – hægt er að segja það sama á mismunandi hátt. Sýndu hugrekki og opnaðu munninn!
- Útvarp, sjónvarp og vídeó bjóða upp á fjölbreytt talað efni og jafnframt tækifæri til að heyra mismunandi framburð og mállýskur. Það er auðvelt að finna efni sem vekur áhuga þinn. Þú getur endurtekið setningar þeirra sem tala til að styrkja talfærnina, sérstaklega tónfall og hrynjandi.
- Safnaðu þínu eigin byrjenda- „smáorðasafni". Lærðu nokkrar nytsamlegar og kurteisar setningar (þ.e. kveðjur, spurnarorð og orðasambönd eins og: Því miður, þá tala ég ekki mikið á ensku/spænsku, Gætir þú vinsamlega talað hægar/endurtekið þetta? Fólk er oft mjög hrifið þegar það tekur eftir að þú hefur áhuga á tungumáli þess.
- Lærðu nokkur gagnleg orðasambönd sem hægt er að nota til að halda uppi samræðum og segja viðmælanda að þú sért að hlusta, til dæmis Það er gott að heyra, En leiðinlegt, Það er athyglisvert, Já/Nei, Ég skil, Er það?. Það veitir þér möguleika á að halda áfram að hlusta á tungumálið og læra meira. Þú getur náð í slík orðasambönd með því að hlusta á útvarp, sjónvarp og vídeó .
- Ef þú ferð til læknis eða í banka erlendis, getur þú æft kringumstæðurnar fyrst með hlutverkaleikjum. Æfðu símtal með vini. Í námsefni má oft finna slíkar samræður.
- Taktu eftir þeim sem hafa erlenda málið að móðurmáli, í raunveruleikanum, í sjónvarpi eða í kvikmyndum og veittu því athygli hvernig samskiptum þeirra við aðra er háttað (tal, látbragð, rödd...). Reyndu að herma eftir og nota það sem þú hefur séð þegar þú notar tungumálið. Hlustaðu vandlega á hvernig fólk í mismunandi aldurshópum talar:
- Tekur þú eftir mun á körlum og konum eða fólki í mismunandi stöðum?
- Veittu því athygli hvernig fólk tjáir tilfinningar sínar (reiði, ást, ánægju).
- Að læra framburð getur verið skemmtilegt ef þú notar (barna-) þulur.
