Fara á upphaf innihalds síðunnar.
Þú ert á

Ábendingar fyrir nemendur

Ég þoli ekki málfræði

  • Málfræði má læra ómeðvitað, með því að tileinka sér hana smám saman í gegnum það sem þú heyrir og lest. Þú getur byggt upp málfræðikunnáttu sem þú gerir þér ekki grein fyrir, á sama hátt og börn læra að gera greinarmun á réttri og rangri setningagerð í móðurmáli sínu þó þau þekki ekki nöfn þeirra.
  • Veldu stuttan texta með þeim málfræðiatriðum sem þú ætlar að leggja á minnið. Klipptu hann í sundur, ruglaðu hlutunum saman og endurgerðu textann. Þetta fær þig til að hugsa um hvað á heima hvar og hvers vegna.
  • Búðu til þína eigin málfræðibók eða þektu vegg með málfræði! Skreyttu með myndum eða töflum ef þú ert sjónrænn nemandi. Skrifaðu niður setningar sem innihalda það málfræðiatriði eða þá formgerð sem þú ert að læra.
  • Nýttu þér fyrri námsreynslu. Berðu saman uppbyggingu nýja tungumálsins við tungumál sem þú þekkir.
  • Bæklingar og vefsíður safna og sýningarsala eru góð leið til að læra „sérfræðimál". Veittu orðaröðinni athygli og hugsaðu þér hvernig skrifa mætti setninguna á óformlegri hátt.
  • Textar dægurlaga endurtaka oft orðasambönd. Syngdu með!
  • Ekki vera óþolinmóð(ur) – það tekur tíma að læra nýtt tungumál! Vertu ekki hrædd(ur) við að gera vitleysur!
[ efst ]