Fara á upphaf innihalds síðunnar.
Þú ert á

Um Lingu@net Europa

Gæðatrygging

Vefsíðurnar sem Lingu@net Europa vísar til hafa verið valdar af þátttakendum í verkefninu eða af notendum okkar sem hafa mælt með þeim. Þær hafa verið samþykktar til birtingar á Lingu@net Europa af þátttakendum verkefnisins í samræmi við eftirfarandi gæðaprófunarspurningar:

  1. Er innihaldið áreiðanlegt, bæði hvað varðar málfar og efnistök?
  2. Er vefsíðan notendavæn með tilliti til stikls, notendaaðstoðar (s.s. beinlínuhjálpar) og viðmótshönnunar?
  3. Eru upplýsingarnar á vefsíðunni nýjar og (þar sem það á við) eru einhver merki þess að henni verði haldið við og hún uppfærð reglulega í framtíðinni?
  4. Er vefsíðan laus við óviðeigandi efni eða krækjur á óviðeigandi efni?
  5. Eru gögnin frá þekktum aðila þ.e. „viðurkenndum aðila" svo sem:
    • alþjóða-, lands- eða svæðisstofnunum og -miðstöðvum sem styðja kennslu og nám í erlendum tungumálum
    • útgefendum og fjölmiðlum,
    • samtökum og hópum fagfólks,
    • öðrum einstaklingum og stofnunum sem tengjast tungumálanámi og -kennslu og uppfylla skilyrðin hér að ofan hvað varðar vefsíður þeirra.

Vefsíðurnar á Lingu@net Europa hafa verið skrásettar og flokkaðar með því að nota efnisvísa á mörgum tungumálum sem hafa verið rannsakaðir og þróaðir af verkefnisteyminu. Efnisvísarnir hafa verið skilgreindir í samræmi við alþjóðlega staðla um lýsigögn sem þróaðir eru af Dublin Core Metadata Initiative (DCMI).

Lingu@net Europa er ókeypis. Þér er velkomið að nota það, mæla með efni sem yrði bætt við safnið og allar athugasemdir eru velkomnar.

[ efst ]