Umræðuhópar
Þig gæti langað til að taka þátt í netumræðuhópum sem hluta af tungumálanámi þínu. Yfirleitt þarftu að gerast áskrifandi að umræðuhópum með því að senda tölvupóst, síðan færðu póst sem aðrir þátttakendur umræðuhópsins senda og þú getur sent póst sem allir meðlimir geta lesið. Sumir umræðuhópar eru virkir á netinu og aðrir eru meira eins og umræðulistar. Þú getur ákveðið hvort þú kýst frekar að taka virkan þátt eða aðeins að lesa framlög annarra. Það getur verið uppörvandi að skrá sig í umræðuhóp á tungumálinu sem þú ert að læra um efni sem vekur áhuga þinn, allt frá vélfræði til tónlistar…
