Netspjall
Það eru ýmsar „spjallrásir" á netinu sérsniðnar fyrir tungumálanemendur, þar sem þú getur haft samband í rauntíma við aðra nemendur og þá sem hafa erlenda málið þitt að móðurmáli. Þú getur einnig notað venjulegar spjallrásir til tungumálanáms með því að mæla þér mót við aðra nemendur á ákveðnum tímum.
Sjáðu hversu árangursríkt netspjall getur verið í tungumálanámi og lestu sögu Camillu.
Þegar þú spjallar slærð þú inn á lyklaborðinu það sem þú ætlar að segja, ýtir á „enter", og það kemur svo strax fram hjá þeim sem eru á spjallrásinni á sömu stundu. Þeir geta svo svarað í rauntíma.
Sumar spjallrásir gefa kost á því að setja spjallumhverfið á það tungumál sem þú ert að læra. Sumar eru einnig með möguleika á raddfundum og töflum sem þú getur teiknað á meðan þú ert að tala, sem getur verið mjög gagnlegt ef þú hefur ekki nægan orðaforða.
Netspjallsvefsvæði
„Netspjall" getur verið líflegur máti til að æfa tungumálið sem þú ert að læra. Tungumálið sem notað er hefur tilhneigingu til að vera talsvert óformlegt svo að þetta er góð leið til að læra og æfa talmálsorð.
Eins og í sérhverju netspjalli er gott að vera varkár og gefa ekki upp neinar persónulegar upplýsingar sem væri hægt að nota í röngum tilgangi.
baskneska, búlgarska, danska, eistneska, enska, finnska, franska, galisíska, gríska, hollenska, íslenska, ítalska, katalónska, litháenska, maltneska, portúgalska, pólska, spænska, sænska, þýska
