Tungumálapróf og verkfæri til sjálfsmats
Hæfni þinni í hvaða tungumáli sem er er hægt að lýsa með hliðsjón af því hvernig þú getur notað tungumálið við tilteknar kringumstæður. Dæmi um þess konar færnilýsingar í tungumálum má finna í sjálfsmatstöflu samevrópska tungumálarammans sem notaður er í Evrópsku tungumálamöppunni.
Þú getur einnig prófað tungumálafærni þína með prófum og sjálfsmati sem gerð hafa verið fyrir einstök tungumál.
Ekkert tungumálapróf er gilt og áreiðanlegt í öllum tilvikum og fyrir alla! Ef þú ferð í gegnum sjálfsmat skaltu hafa í huga að árangurinn endurspeglar aðeins hluta færni þinnar. Aðeins þú sjálf(ur) veist hvernig þú getur raunverulega notað tungumálið!
búlgarska, danska, eistneska, enska, finnska, franska, galisíska, gríska, hollenska, íslenska, ítalska, katalónska, litháenska, portúgalska, pólska, spænska, sænska, þýska
