Tungumálafærni og stig
Að kunna tungumál hefur margvíslega merkingu sem unnt er að meta á ýmsa vegu. Ef þú kannt eitthvað í tungumálinu sem þú ætlar að læra, vilt þú kannski komast að því á hvaða stigi þú ert. Þar geta tungumálaprófin gefið þér til kynna hvað þú veist og getur gert. Með þeim getur þú kannað kunnáttu þína í tungumálinu sjálfu (uppbyggingu, orðaforða, sögu) eða metið getu þína til samskipta á tungumálinu við því sem næst raunverulegar kringumstæður. Flestum tungumálaprófum er skipt í fjóra færniþætti: tal, hlustun, lestur og ritun. Einnig eru sérstök próf í málfræði og orðaforða. Önnur gera þér kleift að meta vald þitt á tungumálinu, málfræðilegri nákvæmni og flóknum tjáningarmáta, stíl, framburði og mörgum öðrum þáttum.
Stigum er oft skipt í byrjandi, lengra kominn, eða lengst kominn. Þýðing slíkra orða er breytileg og fer eftir samhenginu.
