Upplýsingar um aðgengi
Þessi hluti lýsir þeirri tækni sem notuð er hjá Lingu@net Europa fyrir aðgengi fatlaðra. Hann telur upp þau atriði í hönnun vefsins sem auðvelda stikl fatlaðra notenda.
Flýtivísanir á lyklaborðinu
Allar síður eru með eftirfarandi flýtilyklum (Accesskeys) sem hafa verið útbúnir fyrir stikl þegar eingöngu lyklaborðið er notað (þ.e. ekki músin).
Flýtilyklarnir vinna á mismunandi hátt og fer það eftir því hvaða stýrikerfi og vafri eru notaðir. Í Windows eða Linux stýrikerfum, skaltu nota ALT + flýtilykil. Á Apple Macintosh, skaltu nota CTRL + flýtilykil.
- Lykill 0
- Veldu annað viðmótstungumál
- Lykill 1
- Heimasíða
- Lykill 2
- Hvert er færnistig þitt?
- Lykill 3
- Námsleiðir
- Lykill 4
- Spjallsvæði
- Lykill 5
- Leit
- Lykill 7
- Upphaf innihalds síðunnar (sleppa stiklreininni)
- Lykill 8
- Veftré
- Lykill 9
- Upplýsingar um aðgengi (þessi síða)
Athugaðu að mismunandi vafrar veita mismunandi aðstoð þegar flýtilyklar eru notaðir. Til dæmis breytir Microsoft Internet Explorer leið að viðkomandi krækju þannig að nauðsynlegt er að ýta á Enter á eftir flýtilyklinum til að fylgja krækjunni. Aðrir vafrar eins og Mozilla, Firefox eða Netscape 6, fylgja krækjunni strax.
Hönnun og þróun
Þessar síður hafa verið hannaðar og þróaðar til að tryggja samræmi við eftirfarandi W3C leiðbeiningar og staðla:
Allar síðurnar hafa verið staðfestar sem XHTML 1.0 Transitional.
Sjónræn framsetning síðna er byggð á stílsíðum CSS, staðfestum samkvæmt vinnulýsingum stigs 2 CSS.
Allar síðurnar eru í samræmi við eftirlit varðandi forgang 1 og 2 í W3C leiðbeiningum 1.0 varðandi vefaðgengi sem lagðar eru fyrir af vefaðgengissamtökum. Samkvæmt þessu er samræmisstigi Double-A í W3C leiðbeiningum 1.0 varðandi vefaðgengi náð. Aðgengi hefur verið kannað handvirkt og með notkun sjálfvirkra verkfæra. Að auki gefur Lingu@net Europa möguleika á flýtilyklum að mikilvægum krækjum og gætir samræmi í framsetningu, sem bætir enn frekar aðgengi síðnanna samkvæmt forgangi 3 í W3C leiðbeiningum 1.0 varðandi vefaðgengi.
Staðlar
Eftirfarandi táknmyndir og krækjur gefa til kynna samræmingu við viðkomandi staðla:
